AntichristHér er á ferðinni nýjasta meistaraverkið frá snillingnum Lars Von Trier. Par missir son sinn er hann dettur út um glugga á meðan þau stunda kynlíf í næsta herbergi. Móðirin endar á spítala vegna sorgar sinnar, en eiginmaðurinn fer með hana heim og hyggst kljást við þunglyndi hennar upp á eigin spýtur, enda sálfræðingur sjálfur. Til að horfast í augu við ótta eiginkonunnar, koma þau sér fyrir í kofa út í skóginum “Eden” þar sem eitthvað óútskýrt gerðist sumarið áður. Maðurinn og konan afhjúpa dimmu hliðar náttúrunnar, fyrir utan kofann og innra með þeim í ýmsum lostafullum og grimmum athöfnum. Charlotte Gainsbourg var valin besta leikkona Cannes kvikmyndahátíðarinnar fyrir ógleymanlega frammistöðu sína í myndinni.
Myndin hlaut ennfremur Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2009.
GRÆNA LJÓSIÐ