My Sister's KeeperCameron Diaz, Abigail Breslin , Alec Baldwin og Jason Patric fara með aðalhlutverkin í þessari ljúfsáru mynd leikstjórans Nick Cassavetes (The Notebook). Hin ellefu ára gamla Anna Fitzgerald var fædd í þennan heim til að gerast líffæragjafi eldri systur sinnar sem er haldin hvítblæði en ákveður að taka málin í sínar hendur og neitar að verða við því. Þessi yfirlýsing hennar kann að slíta fjölskylduna í sundur en gæti líka orðið fyrsta skrefið í að koma fjölskyldunni í skilning um hvað samheldni er. Á ég að gæta systur minnar er byggð á samnefndri metsölubók sem farið hefur sigurför um heiminn.