Latibær 2.2 - Lati andinnHér eru komnir fjórir nýir þættir um hið litríka líf í Latabæ. Í þættinum „Draugakastalinn“ fær Halla vini sína til að fara með henni inn í gamlan og ótraustan kastala en læsast inni eftir að Glanni hrekkir þau.
„Litli Íþróttaálfur“ segir frá því þegar Glanna tekst að breyta Íþróttaálfinum í tíu ára gamlan strák og ætlar að þjálfa hann upp á nýtt svo hann verði latur í eitt skipti fyrir öll.
„Skólaskellur“ gerist í skóla Latabæjar, þar sem Glanna tekst að dulbúa sig sem kennara og ætlar sér þannig að koma í veg fyrir að þau læri nýja hluti. Í lokaþættinum, „Lati andinn“, tekst Glanna að töfra fram anda úr flösku og fær 3 óskir að launum. Hins vegar á Glanni erfitt með að fá andann til að framkvæma þær eins og hann vill...