Tegund: Íslenskt
SKU: UOS005

Verð: 1.999 kr.

Út og suður 5
Gísli Einarsson hefur í sjö ár flakkað Út og suður um landið og heimsótt fólk sem á það yfirleitt sammerkt að koma til dyranna eins og það er klætt. Þættirnir hafa fengið verðskuldaða athygli enda endurspegla viðmælendur Gísla fjölbreytt mannlíf landsins og þá orku og sköpunargleði sem býr í íslensku þjóðinni.

Hér er kominn fimmti mynddiskurinn með úrvali úr þáttunum, troðfullur diskur af fróðlegu og skemmtilegu fólki.

Viðmælendur Gísla eru:

Rita Freyja Bach og Páll Jensson
handverksfólk, Borgarnesi

Skrímslakarlar
aðstandendur Skrímslasetursins á Bíldudal

Ingunn Snædal
ljóðskáld við Jökulsá

Ólafur Sigurjónsson
listasmiður í Forsæti í Flóa

Anna Hrefnudóttir
myndlistakona í Garðinum

Þorleifur Hjaltason
bóndi í Hólum við Hornafjörð

Gunnar Þórðarson
bílasafnari í Skagafirði

Hildur Anna Björnsdóttir
húsfreyja á Grjótnesi á Melrakkasléttu

Hornstrendingar
fólk og fjöll og firðir og tófur á Hornströndum