Kimono - Easy Music for Difficult PeopleHin goðsagnakennda rokksveit Kimono sendir hér frá sér sína þriðju hljóðversplötu. Þessi níu laga gripur ber heitið Easy Music For Difficult People og er hún gefin út af jaðarútgáfunni Kimi Records. Kimono hefur um langt skeið verið í fremstu röð rokksveita á Íslandi og notið fádæma vinsælda tónlistarunnenda allt frá því að fyrsta plata þeirra, Mineur Aggressif, kom út árið 2003. Easy Music For Difficult People markar tímamót í átta ára sögu sveitarinnar því þetta er fyrsta breiðskífa Kimono sem tríó en Halldór Ragnarsson, bassaleikari, sagði skilið við sveitina fyrir rúmum tveimur árum til þess að einbeita sér að öðru. Eftir stóð þríeykið Kjartan (trommur), Alex (gítar og söngur) og Gylfi (baritone gítar, rafgítar og bassi).Það kemur þó ekki sök þótt sveitin sé bassaleikaralaus - þvert á móti þá hafa Kimono aldrei hljómað jafn þéttir og einmitt nú.
Lagalisti 01 Vienna
02 Black
03 Wire
04 Animal
05 Karen
06 Kente
07 Get Ready (For Some Pain to Have)
08 Tomorrow