Tegund: Íslensk tónlist
SKU: DIM40

Verð: 2.599 kr.

Guðrún Gunnarsdóttir - Cornelis Vreeswijk
Á diskinum eru ljóð og lög eftir sænska söngvaskáldið Cornelis Vreeswijk í íslenskum búningi Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Það heyrir til tíðinda að jafn mikilvirkur og virtur höfundur komi nú fyrst út á íslensku en hugmyndin hefur verið í gerjun um árabil. Ásamt Guðrúnu eru flytjendurnir þeir Tomas „Limpan" Lindberg, sem leikur á gítar, mandólu og búsúkí, Magnus „Storis" Holmström, sem leikur á nyckelhörpu og kontrabassahörpu, Dan Berglund, sem leikur á kontrabassa,Valgeir Skagfjörð, sem leikur á píanó, harmónikku og fótstigið orgel og Pétur Grétarsson, sem leikur á slagverk. Auk þess syngur Aðalsteinn Ásberg eitt lag.

Svíarnir þrír sem koma að verkinu eru allir virtir tónlistarmenn. Tomas Lindberg hefur áður unnið með íslenskum tónlistarmönnum, þegar hann ásamt þjóðlagatríóinu Draupner hljóðritaði plötuna Sagnadans með Önnu Pálínu Árnadóttur, Magnus Holmström er margverðlaunaður meistari á nyckelhörpu og bassaleikarinn Dan Berglund er kunnastur fyrir leik sinn með djasstríóinu EST (Esbjörn Svensson Trio).


Lagalisti