Hjálmar fá gullplötu
Fjórða plata Hjálma, IV, hefur nú selst í yfir 5000 eintökum og af þeim sökum verður meðlimum sveitarinnar afhent gullplata í versluninni Havarí í dag kl. 17. Piltarnir munu einnig taka lagið til að fagna áfanganum.
Allar fyrri plötur Hjálma hafa einnig náð gullplötusölu en engin plata sveitarinnar hefur samt selst eins vel og sú nýjasta og stefnir allt í að platan rjúfi 10.000 plötumarkið á næstunni en nú þegar hafa farið yfir 8000 plötur í dreifingu.
Gullplata Hjálma er jafnframt fyrsta gullplata á vegum útgáfunnar Borgin sem hefur þó ekki enn lifað sína fyrstu jólavertíð til enda.
Eru aðstandendur Borgarinnar og Hjálmarnir sjálfir mjög hrærðir yfir þeim frábæru viðtökum sem platan hefur fengið.
Það er kannski ekki úr vegi að minnast á útgáfugleði Borgarinnar sem fer fram á í kvöld, fimmtudag, á Nasa. Húsið opnar kl. 20.30, aðgangseyrir er eingöngu 1000 krónur og þar munu Hjálmar að sjálfsögðu bregða á leik ásamt Megasi, Hjaltalín og fleiri góðum gestum.