Skífan á milli jóla og nýárs
Nú eru síðustu dagar ársins að ganga í garð og verður opið í Skífunni alla dagana. Opnunartími er frá 10:00 - 22:00 á Laugavegi og 10:00 - 18:30 í Kringlu, nema þann 31. en þá verður opið frá 10:00 - 13:00 í báðum búðum.

Skífan býður nú upp á þá þjónustu að taka við öllum skilavörum í plasti, hvort sem þær voru upphaflega keyptar í Skífunni eða annarsstaðar. Ef varan er ekki merkt Skífunni leggst skilagjald (kr. 199) á hana. Með þessu vonast Skífan til að auðvelda viðskiptavinum vöruskiptin og spara þeim óþarfa ferðir.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár! :)