Tvær íslenskar sveitir á Hróarskeldu í ár
Tónlistarhátíðina Hróarskeldu ættu flestir Íslendingar að þekkja, en hún fer fram í bænum Roskilde í Danmörku seint að sumri hvers árs. Yfirleitt er einni til tveimur íslenskum hljómsveitum eða tónlistarmönnum boðið að spila þar og er hátíðin í ár engin undantekning. Hljómsveitirnar sem valdar hafa verið til að halda heiðri Íslands uppi þetta árið eru rafpoppsveitin FM Belfast og þungarokkararnir í Sólstöfum.

Þess má til gamans geta að nýjasta plata Sólstafa, Köld, er nú loksins fáanleg í Skífunni á sama tíma og platan How To Make Friends með FM Belfast er komin aftur í Skífuverslanir eftir að hafa verið uppseld í þónokkurn tíma. Þeir sem ætla að skella sér á Hróarskeldu í ár verða því að koma við í Skífunni og styðja við íslensku sveitirnar á Hróa - nú og auðvitað kaupa miða á hátíðina, en þeir eru einmitt seldir í Skífunni!