01. Litir 02. Hep tú 03. Speglasalurinn 04. Þú átt að gera allt 05. Ég er frábær 06. Vaxtarlagið
07. Rétt og rangt 08. Farðu burt 09. Skreytum 10. Fandalaggahoj 11. Vinkonur 12. Í réttu ljósi
Um plötuna:
Út er komin geislaplatan Ávaxtakarfan með bráðskemmtilegum lögum og leik úr samnefndum söngleik. Lögin eru eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson en textarnir (og leikritið) eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Leikritið gengur fyrir fullu húsi í Íslensku Óperunni og flytjendur eru ekki af verri endanum. Meðal þeirra má nefna Andreu Gylfadóttur, Selmu Björnsdóttur, Valgerði Guðnadóttur, Margréti Pétursdóttur, Hinrik Ólafsson og fleiri. (Skrifað í október 1998)